Ragnar Freyr Ingvarsson

Útskrifaðist árið 2004, Lækningaleyfi 2005, Deildarlæknir á Landspítala 2005-2008, Sérnám í lundi 2008-2012, lauk lyflækningum 2011 og svo gigtarlækningum 2012. Sérfræðilæknir við Lundarspítala frá 2012-2015 (bandvefssjúkdómar, æðabólgur og rauðir úlfar). Stjórnunarnám 2011-2012 (Ledarskaps ST). Sérfræðilæknir við Eastbourne General Hospital 2015-2016, Interrim Clinical Director MSK partnership east 2012-2016. Sérfræðilæknir í almennum lyflækningum á Landspítala frá 2016-2026. Yfirlæknir COVID göngudeildar 2020. Frægasta uppsögn síðari tíma á Landspítala 2026. 

Hef rekið eigin stofu síðan 2016, fyrst í Klíníkinni svo síðan 2020 undir merkjum Gigtarmiðstöðvarinnar í Heilsuklasanum. Stofnaði Beinstyrk árið 2021 og svo Lyfjagjöf innrennslismiðstöð árið 2022. 

Formaður LR síðan maí 2022. Stjórnarmaður í LÍ síðan 2022. 

Læknirinn í Eldhúsinu síðan 2006. Blogg, samfélagsmiðlar, bækur og sjónvarpsþættir. 

Giftur Snædísi Evu sálfræðing hjá Styðjandi sálfræðiþjónustu. Eigum þrjú börn - Valdísi Eik, Vilhjálm Bjarka og Ragnhildi Láru. Einnig köttinn Bjart og hryssurnar þrjár; Heru, Pandóru og Sváss. 

Silja Kosola

  • MD PhD, Associate professor in adolescent medicine
  • Group Leader at Pediatric Research Center, University of Helsinki

Katrín Kemp

Katrín R. Kemp Guðmundsdóttir lauk læknanámi frá Ruprecht-Karls-háskólanum í Heidelberg í Þýskalandi árið 2007. Vann á Landspítala á kandídatsári og sem deildarlæknir 2007-2011. Hún varð sérfræðingur í lyflækningum 2013 og hjartalækningum 2016 í Stokkhólmi. Hún lauk doktorsprófi frá Karolinska Institutet í Svíþjóð árið 2020. Doktorsrannsókn hennar fjallaði um skimun fyrir gáttatifi hjá eldra fólki með það að markmiði að draga úr hættu á heilablóðfalli.K

Katrín starfaði um árabil við hjartadeild Danderyd-sjúkrahússins í Stokkhólmi en frá árinu 2021 hefur hún starfað sem hjartalæknir á Landspítala og Hjartamiðstöðinni og hefur gegnt starfi framkvæmdastjóra Hjartamiðstöðvarinnar frá árinu 2023.

Katrín er stjórnarmaður í LR og sat í stjórn lækanfélagsins 2023-2026.

Hún er mikil áhugakona um skíðaiðkun.

Erik Eriksson

 

Lauk námi í læknisfræði í HÍ 2007. Eftir sérnám í geðlækningum á Landspítalanum og South London and Maudsley NHS flutti aftur til Íslands 2013. Starfaði fyrstu árin á fíknigeðdeild LSH, matsteymi Laugaráss og fyrsta geðheilsuteyminu í Reykjavík. Var svo um tíma með stofurekstur. Fór í fullt starf hjá Geðheilsuteymi HH austur 2018.  

Kom að stofnun Heilaörvunarmiðstöðvarinnar árið 2023 og verið þar í hlutastarfi síðan 2024. Færði mig úr geðheilusteyminu yfir í heimahjúkrun HH Í nóvember 2025. Er tímabundið í leyfi frá Heilaörvunarmiðstöðinni og er 20% í geðheilsuteymi HSN á Akureyri.  

Hef samhliða klínískri vinnu sinnt kennslu læknanema í geðlæknakúrsi í HÍ árlega  auk kennslu cand psych nema í HR. Hef einnig verið matsmaður og meðdómari fyrir dómstóla. Stunda svigskvíði, snjóbretti, gönguskíði og fjallaskíði af miklum áhuga og sæmilegri færni. Þokkalega laghentur smiður og áhugakokkur.

 

Sigurður Árnason

Sigurður lauk sérnámi í barnalækningum við Astrid Lindgrens barnaspítalann á Karolinska árið 2017. Sigurður starfaði sem barnalæknir í smitsjúkdómateymi Astrid Lindgrens barnaspítalans 2017-2022 og gegnir þar áfram hlutastöðu. Frá 2023 hefur Sigurður starfað sem barnalæknir hjá Domus barnalæknum og sem barnalæknir í smitsjúkdómateymi Barnaspítala Hringsins síðan 2024.

Sigurður stundaði nám við Háskólann í Oxford árin 2022-2024 og lauk þaðan gráðu í smitsjúkdómalækningum barna (Postgraduate Diploma of Paediatric Infectious Diseases). Sigurður lauk doktorsnámi frá Karolinska Institutet árið 2025. Rannsóknir hans fjalla um helftarandlitslömun og taugaborrelíu hjá börnum af völdum skógarmítla.

Sigurður er mikill áhugamaður um vetraríþróttir og stundar snjóbretti, svigskíði og gönguskíði með tilheyrandi valkvíða á hverjum morgni í fjallinu.

Þóra Elísabet Kristjánsdóttir

Útskrifaðist með cand.med frá HÍ 2011. Kandídatsár á LSH og Egilsstöðum. Lækningaleyfi frá 2012. Sérnám í heimilislækningum 2012-2017 með heimastöð á Hg Egilsstöðum og síðar Hg Firði frá 2016, spítala rotationir á SAk, LSH og Kongsberg Sykehus í Noregi. Sérfræðingur í heimilislækningum á Heilsugæslunni Firði 2017-2023. Trúnaðarlæknir Íslandsbanka 2020-2022. Hef leyst af á yfir 20 heilsugæslum á Íslandi, mest á Austurlandi. Hef unnið á bráðamóttöku LSH frá 2021. Diploma (IEMTP) í bráðalækningum frá The Australian Royal Collage 2024. Ákvað í framhaldi að sækja um sérnám í bráðalækningum og er á síðustu metrunum að klára það. Vann í 1 ár á svæfinga- og gjörgæsludeild LSH á Hringbraut 2024-2025 sem hluta af sérnámi í bráðalækningum. Verið í ritnefnd leiðbeininga fyrir sjúkraflutninga frá því 2024, tókum við ambulance.is 2025. Yfirlæknir á Djúpavogi frá 1.febrúar 2026 og umsjónarlæknir sjúkraflutninga á Austurlandi.

Árið 2014 var ég þekkt sem ríkasti læknir Íslands eftir að launaseðillinn minn fór í dreifingu á alnetinu í verkfalli lækna. Ég hef synt í peningum allar götur síðan. 

Er alveg makalaus og á úrvalspiltana Hallgrím Mána og Þormóð Ara og litlu ömmuskvísuna hana Jönu. Á einnig skiptinemadóttur á Spáni, hana Ætönu Crespo Þórudóttur.